Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Þorri og Þura Jólakristallinn

3,690 ISK

Höfundur Agnes Wild, Bergrún Íris

Jólin nálgast og Þorri og Þura eiga að gæta jólakristalsins hans afa. Allt í einu hættir kristallinn að lýsa og hinn eini sanni jólaandi því í mikilli hættu! Tekst vinunum að laga kristalinn og bjarga jólunum?
Agnes Wild skrifar söguna en hún er byggð á leiksýningunni Jólaævintýri Þorra og Þuru eftir Miðnætti sem frumsýnd var í Tjarnarbíói 2019. Tónlistin er eftir Sigrúnu Harðardóttur og Eva Björg Harðardót tir sá um búninga og útlit.
Bergrún Íris myndhöfundur tók að sér að gæða prentútgáfuna lífi og gera teikningar hennar bókina að einstökum og eigulegum grip. Þorri og Þura eru börnum landsins vel kunn og birtast hér í gullfallegu ævintýri sem kemur lesendum í sannkallað jólaskap!