Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Skólastjórinn
6,490 ISK
Höfundur Ævar Þór Benediktsson
Salvar, 12 ára gamall vandræðagemlingur, sótti um stöðu skólastjóra því honum fannst það fyndið. Alveg þangað til hann fékk stöðuna.
Vopnaður endalausum hugmyndum (Pítsa og kandífloss í hádegismat! Nemendur mega reka tvo kennara á ári! Grís í hvern bekk!) ræður Salvar skyndilega ríkjum í skólanum ásamt bestu vinkonu sinni, Guðrúnu.
Skólastjórinn er sprenghlægileg og hjartnæm þroskasaga, ríkulega myndlýst af Elínu Elísabetu Einarsdóttur. Fullkomin fyrir alla sem hafa einhvern tímann verið í skóla.
Ævar Þór Benediktsson er einn vinsælasti höfundur landsins. Hann hefur sent frá sér tæplega fjörutíu bækur og fengið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, bæði innan lands og utan. Fyrir Skólastjórann hlaut hann Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur.