Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hver er leiðin?

4,490 ISK 3,990 ISK

Höfundur Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir

Draumur Freyju er að vinna til verðlauna. Þegar hún mætir á keppnisstað eru margar áskoranir í vegi hennar sem í fyrstu virðast óyfirstíganlegar. Freyja þarf að finna hugrekkið, læra að treysta sjálfri sér og taka á öllu sínu til að komast í mark. Með hjálp dýravina sinna kemst hún að því að ferðalagið er mikilvægara en verðlaunin.

Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa báðar tvisvar sinnum orðið heimsmeistarar í CrossFit og þekkja vel að leiðin að slíkum verðlaunum er ekki auðveld. Hver er leiðin? er skemmtileg og hvetjandi bók sem er skrifuð til að hjálpa yngri kynslóðinni að skilja að þegar við viljum að draumar okkar rætist munu áskoranir verða í vegi okkar en ef við tökumst á við þær munum við vaxa. Mistök eru hluti af leiknum. Sigurvegarar eru þeir sem hafa trú á sjálfum sér, gefast ekki upp og gera betur í dag en í gær.