Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Berlínarbjarmar

6,490 ISK 4,990 ISK

Höfundur Valur Gunnarsson

Framtíðin tilheyrir Berlín. Það hefur hún lengi gert, og þó lætur fortíðin finna fyrir sér við hvert fótmál. Í rúm 40 ár var Berlín ekki ein borg, heldur tvær. Mörgum þótti spennandi að heimsækja Austur-Berlín, samhliða veröld þar sem allt sneri einhvern veginn á haus. En hinn helmingur borgarinnar var ekki síður einstakur. Vestur-Berlín varð anarkistakommúna reist á prússneskum grunni, allt var leyfilegt en þó vel skipulagt. Lítil vin mitt á milli áhrifasvæða stórvelda, umkringd gaddavír en þó frjáls á sinn einstaka hátt.Og svo féll múrinn.

Langamma, David Bowie og ég

Sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson kryfur hér sögu hinnar margslungnu Berlínar og nágrennis frá mörgum hliðum allt frá tímum keisara, nasista, heimsstyrjalda og svo aðskilnaðar til falls múrsins. Við sögu koma hin þýska langamma höfundar, goðsögnin David Bowie og rokkhundurinn Iggy Pop, innflytjendur og rómantíkerar, políamoristar og pönkarar sem myndað hafa með sér sérstakt samfélag í þessari borg sem ekki er eins og nein önnur.

Valur Gunnarsson lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt-háskóla í Berlín og Kúras-stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur áður sent frá sér sjö bækur, þar á meðal Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu, skáldsöguna Örninn og fálkann sem fjallar um hvað hefði gerst ef nasistar hefðu hernumið Ísland, Stríðsbjarma um átökin á milli Úkraínu og Rússlands sem og tvær bækur um „hvað ef?“ spurningar sögunnar, aðra þeirra á ensku. Valur hefur starfað fyrir fjölmarga miðla, til dæmis Berliner Zeitung og gert þætti um Bowie í Berlín fyrir Rás 1. Hann var áður söngvari hljómsveitarinnar Ríkisins og hefur gert plötu með lögum Leonard Cohen á íslensku. Bók þessi byggir á tólf ára reynslu af Berlín og er að mestu skrifuð í Neukölln veturinn 2024.

Viðtal við Val í Bara bækur á Rás 1

Valur á Sprengisandi

Viðtal við Val hjá DV

Úfgefandi: SALKA