Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fótboltaspurningar Illuga 2

3,990 ISK

Höfundur Illugi Jökulsson

Hér er komin mögnuð spurningabók sem snýst eingöngu um fótbolta!
Bókin innheldur 15 spurningaleiki, sem innihalda 15 spurningar hver. Alls 225 spurningar!
Veistu allt um fótbolta? Nú kemur það í ljós!
Illugi Jökulsson hefur samið spurningagetraunir í fjöldamörg ár og kann listina að blanda saman léttum og þungum spurningum svo úr verður hörkuspennandi keppni.
Illugi er þekktur fyrir að vita mikið um margt og það þarf ekki að koma á óvart að hann veit nánast allt um fótbolta. Hér er því komin önnur bók frá honum með ferlega skemmtilegum fótboltaspurningum.