Banvænn fundur

Anders De La Motte og Måns Nilsson

4,690 ISK
4,690 ISK 0 ISK

Banvænn fundur er önnur sagan í bókaflokknum um Österlen-morðin eftir sænska tvíeykið Anders de la Motte og Måns Nilsson en sú fyrsta, Dauðinn á opnu húsi, hlaut afar góðar viðtökur. De la Motte er fyrrverandi lögreglumaður og einn ástsælasti glæpasagnahöfundur Svía og Nilsson er handritshöfundur, grínisti og barnabókahöfundur.

Sumardýrðin ríkir á Österlen og allir sem vettlingi geta valdið eru mættir á stóra fornmunamarkaðinn sem haldinn er árlega. Þar á meðal eru sjónvarpsstjörnur og fornmunasalar á höttunum eftir gripum sem gætu fært þeim milljónir. Ein slík skál kemur í leitirnar – og reynist banvænn fundur.

Lögreglumaðurinn reglufasti, Peter Vinston, er í fríi í grenndinni og fyrir tilviljun er hann fyrstur á vettvang, lögreglukonunni Tove Esping til lítillar gleði, enda er henni í mun að fá að sanna sig án afskipta hans. Saman verða þau þó að leysa snúið morðmál sem vindur sífellt upp á sig.

Nanna B. Þórsdóttir þýddi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Banvænn fundur

Banvænn fundur

4,690 ISK
4,690 ISK 0 ISK