Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Dorgað í djúpi hugans
8,490 ISK
Höfundur Skúli Thoroddsson
Allt sem þú ert er frá öðrum komið. Lögfræðingurinn Skúli Thoroddsen pælir í meiningu þessara orða og fiskar upp lifandi atvik bernsku- og æskuáranna á myndrænan hátt hvort heldur sem krakki á barnaheimili, unglingur í brúarvinnu eða sveitastrákur hjá Konunni í dalnum og dætrunum sjö. Þá segir Skúli frá fyrstu ástinni og fer út í heim auk þess að bregða upp lifandi myndum af ættmennum sínum ýmsum og samferðarfólki. Ljóðrænar lýsingar hans á náttúru landsins, tónlist og skáldskap tilverunnar gera þessa bók að sannkölluðum yndislestri.
Athyglisverð uppvaxtarsaga um veröld sem var á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.