Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Umbreyting

5,490 ISK

Höfundur Emelía P. Sigurðardóttir, Edda Andrésdóttir, Arndís L. Guðmundsdóttir

Ert þú eða einhver sem þér þykir vænt um að nálgast breytingaskeiðið?

Einkenni minnkandi hormónaframleiðslu í upphafi tíðahvarfa geta læðst aftan að konum og stundum er erfitt að festa fingur á þær breytingar sem eru að eiga sér stað. Þess vegna getur verið gott að halda markvisst utan um líðan og þróun einkenna.
Þessi bók er hugsuð sem stuðningur við konur sem vilja taka ábyrgð á eigin heilsu og takast á við umbreytingu þessa æviskeiðs á meðvitaðan og uppbyggilegan hátt. 

Í bókinni er að finna fróðleik og góð ráð, 52 vikuyfirlit til að skrá einkenni, 12 milliyfirlit til að halda utan um svefn, hreyfingu, mataræði og líðan, skipulagsblöð fyrir læknisheimsóknir og rými fyrir hugleiðingar.
Bókin er ódagsett og því hægt að skrá þegar hentar. Falleg og góð gjöf.