Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Ætigarðurinn

3,990 ISK

Höfundur Hildur Hákonardóttir

Listakonan Hildur Hákonardóttir sinnir gróðri allan ársins hring. Hér leiðir hún okkur á vit náttúru og sýnir fram á hve ánægjulegt er að lifa í sambýli við hana. Í bókinni eru girnilegar uppskriftir og áhugaverðar frásagnir um lífið, lækningar og hugmyndafræði ræktunar. Ætigarðurinn er gagnlegt uppflettirit en jafnframt skemmtileg saga höfundar sem hefur aflað sér viðamikillar þekkingar á þeirri menningu sem tengist ræktun - bæði á Íslandi og víða um heim. Ætigarðurinn - himneskt kver sem er hafsjór af fróðleik og innblæstri, svo skemmtilega og lifandi skrifað að þegar ég tók mér bókina í hönd þá fór ég þangað ... - Sólveig Eiríksdóttir Þetta er yndisleg bók. Hún bæði jarðtengir mann og lyftir manni á andlegt plan. Jafnvel þó maður hafi ekki nokkurn áhuga á garðyrkju eða hollustu er þetta dásamleg lesning. Hún hjálpar manni við að vera manneskja. - Unnur Jökulsdóttir