Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Candida sveppasýking

2,490 ISK 999 ISK

Höfundur Guðrún G. Bergmann

Hér fjalla Hallgrímur Þ. Magnússon, læknir, og Guðrún G. Bergmann, höfundur sjálfræktarbóka, á einfaldan og auðskiljanlegan hátt um það hvað candida sveppasýking er, helstu einkenni, hversu skaðleg hún geti verið líkamanum og hvernig hægt sé að öðlast góða heilsu á ný. Bæði hafa þau persónulega reynslu af þessum kvilla, en líka víðtæka fagþekkingu.

Hallgrímur Þ. Magnúson var sérfræðingur í deyfingar- og svæfingalækningum, auk þess sem hann lagði stund á kínverskar nálastungulækningar. Hann var einstaklega fróður um innihaldsefni fæðunnar og þau áhrif sem fæðan hefur á líkamsstarfemina.

Guðrún G. Bergmann hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsurækt og einnig þýtt bækur um sömu málefni. Hún hefur látið mikið til sín taka í baráttu fyrir “grænum” lífsstíl og bættri umgengni við náttúruna.

Í Candida er fjallað um fæðusamsetningu, á hvaða tíma sólarhrings helstu líffæri okkar starfa, hvernig best sé að takast á við breyttan lífsstíl, og margt fleira sem vekur okkur til vitundar um þá staðreynd að við sjálf getum stórlega bætt líðan okkar ef við veljum að borða hollari mat, þekkja líkamsstarfsemina betur og lifa heilbrigðu lífi.

Þessi bók kom upphaflega út árið 1995 og var svo endurprentuð 1997 og 1999. Vegna mikillar eftirspurnar er hún nú gefin út aftur en í þetta skipti betrumbætt og endurskrifuð í ljósi ýmissa nýrra rannsókna um þennan algenga en leynda kvilla.