Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hin mörgu andlit kristninnar

3,990 ISK 499 ISK

Höfundur Þórhallur Heimisson

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Hin mörgu andlit kristninnar er byggð á sviðpaðri hugmynd og bók Þórhalls, Hin mörgu andlit trúarbragðanna sem kom út 2005 og fjallaði um öll trúarbrögð heimsins - en nú tekur höfundur fyrir kristna trú og sögu eins og nafnið ber með sér. Í bókinni skoðar höfundur trúna frá ýmsum hliðum og gerir upp samskipti sín við kirkjuna. Bókin skiptist í fimm hluta; í fyrsta hluta er Biblían skoðuð, næsti hluti snýr að sögu kristninnar, í þriðja hluta er beint sjónum að kirkjuárinu, uppruna og sögu daganna og siðferðislegum átakamálum í samtímanum. Í fjórða hluta er farið í gegnum trúarjátninguna og í fimmta og síðasta kaflanum fjallar höfundur um dulræna reynslu sína, spíritisma og hið yfirskilvitlega. Í þessari sjöundu bók sinni rekur Þórhallur Heimisson sögu, þróun, kenningar og átök þeirra sem aðhyllast kristna trú, allt frá Egyptalandi hinu forna til Íslands í dag. Þetta er stórbrotin saga um marga mikilvæga sögulega þætti; blóðug átök krossferðanna fá hér sitt rými, musterisriddarar og múslímar, kristin talnaspeki og táknfræði, biblíurannsóknir og dagar kirkjuársins svo fátt eitt sé talið. Einnig rekur höfundur reynslu sína af dulrænum atburðum, rannsóknum á nær-dauða-reynslu og spíritisma og veltir upp spurningum um líf eftir dauðann. Bókin er spennandi lesning um sögulegar staðreyndir sem hér eru færðar í aðgengilegan búning fyrir alla sem vilja vita meira um bakgrunn sinn. Auk þess gefa persónulegar hugleiðingar höfundarins bókinni aukna vídd.