Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Flugur og fleiri verk
7,990 ISK
Höfundur Jón Thoroddsen
Þessi ljóð eru ort af ungum manni handa ungu fólki, um það að vera ungur og kunna að slæpast og mega vera að því að þjást ... Og flugurnar hafa sveimað með æ háværara suði fram á þennan dag, ungt fólk hefur lesið þessa bók og hrifist af beittum smámyndum Jóns.
Úr eftirmála
Ljóðabókin Flugur eftir Jón Thoroddsen kom út árið 1922. Mun hún vera fyrsta bókin á Íslandi sem eingöngu hafði að geyma prósaljóð. Hún er nú endurútgefin í tilefni af hundrað ára ártíð höfundar. Í þessa útgáfu hefur auk þess verið safnað öðrum ljóðum og textum Jóns fyrir utan Flugur.
Guðmundur Andri Thorsson annaðist útgáfuna og ritaði eftirmála.