Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Björn Pálsson - Flugmaður og þjóðsagnapersóna

6,290 ISK

Höfundur Jóhannes Tómasson

Björn Pálsson var frumkvöðull í sjúkraflugi á Íslandi. Hann vann marga hetjudáðina og var kallaður "bjargvættur landsbyggðarinnar" en hann var oft eina lífsvon sjúkra og slasaðra úti á landi. Hann fór í loftið þótt veðurútlitið væri allt annað en gott til flugs, svo ekki sé nú minnst á lendingarstaðina sem sumir voru varla meira en "lófastærð".

Í þessari bók er einstakur flugmannsferill Björns Pálssonar rakinn í máli og myndum. Greint er frá ótrúlegum björgunarafrekum hans, fjölbreyttum verkefnum og flugvélunum tólf sem hann átti.