Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Eldri konur kilja

4,690 ISK

Höfundur Eva Rún Snorradóttir

Ung kona gefur rapport af þráhyggju sinni fyrir eldri konum og rekur
líf sitt frá barnæsku til fullorðinsára gegnum frásagnir af konum
sem hafa heltekið hana. Eldri konur er röntgenmynd af ástandi. Við
kynnumst konunni með ólíkum brotum af sögu hennar, uppvexti í
flóknum heimilisaðstæðum, mismunandi vinnustöðum, vináttu,
ástum, sigrum og ósigrum.

Ég hef alltaf verið rótlaus og vannærð. Þegar ég kynntist áfengi
fannst mér eins og ég væri gróðursett í sólríkan lund. Tilveran
fékk á sig fagurgulan blæ eins og horft væri gegnum litað gler.
Allt varð bærilegra. Fljótlega fór ég þó út í harðara efni.

Efnið mitt gerir mig heila, fyllir mig krafti, lífi, fær mig til að
engjast um af fráhvörfum og þráhyggju, lemja, slá, fær mig
umsvifalaust til að steypa mér í glötun.

Efnið mitt er eldri konur.