Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Góðir Íslendingar

4,290 ISK

Höfundur Huldar Breiðfjörð

Ungur Reykvíkingur, sem hefur sjaldan komið út fyrir borgarmörkin, ákveður að beina lífi sínu á nýjar brautir; kveðja Kaffibarinn, kaupa gamlan Lapplanderjeppa og halda í tveggja mánaða hringferð um landið. Jeppinn er bústaður hans og ekki nokkur sála á ferð fyrir utan heimafólk. Hógvær og ísmeygileg gamansemi bregður óvæntu ljósi á íslenska þjóð en um leið verður þessi óvissuferð í vetrarmyrkri um viðsjálar heiðar leit Íslendings að sjálfum sér.

Góðir Íslendingar er fyrsta bók Huldars Breiðfjörð. Hún vakti verðskuldaða athygli þegar hún kom fyrst út árið 1998 og var meðal annars tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.