Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Karítas án titils

3,990 ISK

Höfundur Kristín Marja Baldursdóttir

Karitas án titils er dramatísk og áhrifamikil örlagasaga ungrar stúlku í upphafi 20. aldar, saga um drauma og þrár, óvænta hamingju, óbærilega sorg og miklar ástríður. Um leið er af einstöku innsæi brugðið upp mynd af lífi og hlutskipti kvenna fyrr og síðar.

Karitas Jónsdóttir elst upp í stórum hópi föðurlausra systkina. Móðir þeirra vill koma þeim öllum til mennta og þau þurfa að leggja hart að sér. En Karitas er margt til lista lagt og hana dreymir um öðruvísi tilveru.

Fyrir tilviljun kynnist hún óvenjulegri konu með trönur og upp frá því tekur líf hennar að hverfast æ meir um tvö máttugustu öfl tilverunnar, listina og ástina.