Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Á fjarlægri strönd

3,990 ISK

Höfundur Jenny Colgan

Lorna er skólastjóri á litlu skosku eyjunni Mure, friðsælum stað þar sem allir hjálpast að. En staðarlæknirinn er kominn á aldur og enginn fæst til að taka við af honum. Í fjarlægum flóttamannabúðum gerir Saif að sárum ungs drengs. Saif er sýrlenskur flóttamaður en hann er líka læknir sem er einmitt það sem íbúar Mure þurfa á að halda. Saif er boðinn velkomin til Mure en getur hann fundið þar frið?

Hliðarsaga og þriðja bókin af fjórum í bókaflokknum um Flóru og sumareldhúsið á Mure.

Yndisleg saga eftir metsöluhöfundinn Jenny Colgan sem heillað hefur lesendur um allan heim með hugljúfum og skemmtilegum bókum sínum. Á fjarlægri strönd er sjöunda bók höfundar á íslensku en áður hafa komið út Litla bókabúðin í hálöndunum, þriggja bóka flokkurinn um Litla bakaríið við Strandgötu og tvær bækur af fjórum í Mure bókaflokknum.