Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fær í flestan sjó

3,990 ISK

Höfundur Kristín Jórunn Hjartardóttir og Egill Eðvarðsson

Kristín Jórunn Hjartardóttir hafði stundað sjósund í heilsubótarskyni í nokkur ár þegar hún ákvað, í tilefni af sextugsafmæli sínu, að synda á sextíu mismunandi stöðum á landinu. Við tók stórskemmtilegt ár þar sem hún og Egill Eðvarðsson eiginmaður hennar ferðuðust um Ísland þvert og endilangt – hún synti í sjó, ám og vötnum en hann skrásetti ferðalagið í myndum. Þegar upp var staðið voru þau búin að kynnast 82 ógleymanlegum sundstöðum.
Afraksturinn er þessi dásamlega fallega ferðabók sem fléttar á einstakan hátt saman stemningu, fróðleik og hagnýtar leiðbeiningar fyrir sundfólk sem langar að upplifa þá gleði og kraft sem náttúrusund á Íslandi getur veitt.