Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Heimsmeistari

7,490 ISK 4,290 ISK

Höfundur Einar Kárason

Heimsmeistari er kynngimögnuð frásögn um glataðan snilling sem er ævifangi síns hrjúfa lundernis, listilega samin af sagnameistaranum Einari Kárasyni.

Í miðju köldu stríði öttu fulltrúar austurs og vesturs kappi við skákborðið í smáborginni Reykjavík. Heimsmeistaratitill var í veði og vestrið vann. Sigurvegarinn ungi var sérvitur og óbilgjarn en heimafólk hafði samúð með honum og gleymdi ekki afreki hans.

Mörgum árum síðar hefur þessi hornótti einfari komið sér í meiri háttar ónáð hjá stjórnvöldum heimalands síns og situr í japönsku fangelsi, einmana og smáður. Þá grípa velunnarar frá eyjunni í norðri til sinna ráða og sækja heimsmeistarann yfir hálfan hnöttinn – en flóttinn til Íslands er dýru verði keyptur.