Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Eden - kilja

4,290 ISK

Höfundur Auður Ava Ólafsdóttir

Málvísindakona sem er sérfræðingur í fámennistungumálum ákveður að breyta landi þar sem ekkert grær í Edenslund. Hjá íbúum í nálægu þorpi kviknar óvæntur áhugi á málvísindum. Á fjörur söguhetju rekur handrit að ljóðabók fyrrverandi nemanda hennar sem fjallar um ást ungs karlmanns á eldri konu.

Ég segi ekki neitt en hugsa með mér, hann gat klætt sig sjálfur og beygt orðið kýr.

kýr


kýr

Þessi áttunda skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur fjallar um mátt orðsins og ábyrgðina sem við berum.

Auður Ava hefur hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin, bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og hin virtu Médicis-verðlaun í Frakklandi.

Skáldsögur Auðar Övu hafa verið þýddar á 33 tungumál.