Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Frelsun dýra

3,490 ISK

Höfundur Peter Singer

Þótt þetta siðferðislega ögrandi og mikilvæga verk sem kom fyrst út árið 1975 hafi breytt viðhorfum almennings til aðbúnaðar og velferðar dýra á Frelsun dýra fullt erindi í dag. Sú undirliggjandi hegðun okkar sem Singer afhjúpar sem siðferðilega óréttlætanlega er enn ráðandi hvarvetna í samfélögum mannfólks. Bókin er mikilvægt framlag til grundvallarsiðfræði því að rök Singers eru skýr og staðföst og hann byggir mál sitt hvorki á persónulegri eða trúarlegri afstöðu, heldur á siðferðisgildum sem við flest fylgjum nú þegar. Frelsun dýra er ómissandi lesefni fyrir alla sem haldnir eru efasemdum um málefnið, sem og þeim sem nú þegar taka þátt í frelsuninni.

Benjamín Sigurgeirsson þýddi.