Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hingað og ekki lengra!

4,990 ISK

Höfundur Hildur Knútsdóttir, Þórdís Gísladóttir

Ef þið hafið aldrei skipulagt glæp og beðið í marga klukkutíma eftir því að foreldrarnir sofni til að geta laumast út og látið til skarar skríða getið þið ábyggilega ekki ímyndað ykkur hvernig tilfinningin er. Það er sko mun erfiðara en að bíða eftir jólunum. Þá hlakkar maður til einhvers. Það er þúsund sinnum verra að bíða eftir einhverju sem maður kvíðir fyrir.

Hingað og ekki lengra! fjallar um Vigdísi Fríðu og vinkonur hennar, þrettán ára stelpur sem láta ekki valta yfir sig. Glæpur kemur sannarlega við sögu en bókin er samt hryllilega fyndin.

Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir hafa áður skrifað saman bækurnar um Dodda. Sú fyrri, Doddi – Bók sannleikans!, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.

Helga Valdís Árnadóttir myndlýsti.