Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Aðeins ein áhætta

3,990 ISK

Höfundur Simona Ahrnstedt

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Ambra Winter er blaðamaður á stærsta dagblaði Svíþjóðar. Henni er falið að skrifa um atburði í bænum Kiruna, nyrst í Svíþjóð. Þegar hún kemur í þetta litla samfélag vakna óþægilegar minningar. En það eru fleiri en hún sem þurfa að horfast í augu við fortíð sína. Meðal annars sérsveitarmaðurinn fyrrverandi sem sest hefur að í kofa úti í skógi og hún laðast að …

Sænska ástarsögudrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt sló rækilega í gegn með Teflt á tvær hættur-seríunni – syrpu ástarsagna úr nútímanum um sterkar konur, spennandi ráðabrugg og ástarævintýri. Aðeins ein áhætta er þriðja og lokabókin í seríunni en hinar eru Aðeins ein nóttog Aðeins eitt leyndarmál.