Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Spádómurinn

4,690 ISK

Höfundur Hildur Knútsdóttir

„Þeir birtast einfaldlega við hlið barna nóttina eftir að þau fæðast og þeir hverfa nóttina eftir að manneskja deyr … Þeir eru einn af leyndardómum lífsins. Vængirnir og austrið.“

Kolfinna er fimmtán ára og með höfuðið fullt af spurningum: Hvers vegna að eiga vængi ef maður má ekki nota þá? Um hvaða ógn voru foreldrar hennar að pískra í skemmunni og hvað felst í spádóminum sem einungis fullorðna fólkið í þorpinu þekkir?

Spádómurinn er æsispennandi saga úr framandi heimi þar sem dularfull öfl sækjast eftir völdum og það verða örlög unglingsstúlku að spyrna við fótum. Bókin var valin þriðja besta barnabók ársins 2012 af bóksölum.