Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Tríó

3,990 ISK

Höfundur Johanna Hedman

Thora er einkabarn auðugra bóhemforeldra, fædd með silfurskeið í munni inn í sænska yfirstétt. Hún og August eru bernskuvinir – stundum elskendur – en rót kemur á samband þeirra þegar Hugo kemur til sögunnar. Bakgrunnur hans er annar og hann heillast af forréttindaveröld þeirra en skelfist hana um leið. Þau dragast hvert að öðru og við taka langar setur á kaffihúsum og stúdentabörum, partíferðir á hlýjum sumarnóttum, ferðalög til Parísar, London, Berlínar … En undir yfirborðinu krauma andstæður, stéttamunur, ást – eða óvissa um ást og tilfinningar. Og jafnvægið sem ríkir á milli þeirra er afar viðkvæmt.

Johanna Hedman er fædd 1993 og hefur starfað í sænsku utanríkisþjónustunni. Tríó er fyrsta skáldsaga hennar, næm og grípandi lýsing á tilfinningum, efasemdum og angist ungs fólks sem veit ekki hvert skal stefna. Bókin vakti mikla athygli og hefur verið seld til margra landa.

Halla Kjartansdóttir þýddi.