Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Morðið við Huldukletta

3,990 ISK

Höfundur Stella Blómkvist

Morðið við Huldukletta er tólfta bókin um tannhvassa tálkvendið Stellu sem tekst óhrædd á við hættulegt og valdamikið fólk – jafnt sem unaðslegar áskoranir í einkalífinu.

Hver slær hendinni á móti fimmtíu milljónum? Ekki hún Stella Blómkvist, sem tekur svellköld að sér að rannsaka morðið á syni umdeilds útrásarvíkings. Dóttir annars verðbréfaspaða leitar líka til hennar með dularfull bréf frá föður sínum sem lést níu árum fyrr. Og áður en varir er stjörnulögmaðurinn sígraði kominn á bólakaf í vafasamar viðskiptafléttur, svik og leyndarmál frá árunum fyrir hrun.