Psst... við erum líka bar!

Sendum frítt þegar verslað er fyrir meira en 10.000kr í vefverslun!

Stund klámsins

Kristín Svava Tómasdóttir

5,490 ISK
5,490 ISK

Stund klámsins er fyrsta fræðilega verkið um sögu kláms á Íslandi og að því leyti tímamótaverk.

Á tímum kynlífsbyltingarinnar á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar jókst sýnileiki nektar og kynlífs í vestrænni menningu. Í kvikmyndum og sjónvarpi, bókum og blöðum, leikhúsi og ljósmyndum var kynlíf ekki aðeins gefið í skyn heldur var því lýst af sívaxandi nákvæmni. Víða um lönd velti fólk því fyrir sér hvernig skyldi skilgreina klám við þessar aðstæður. Hvernig var ásættanlegt eða æskilegt að sýna kynlíf – og hvernig ekki?

Stund klámsins fjallar um sögu kláms á Íslandi á árum kynlífsbyltingarinnar og alla þá ólíku aðila sem tóku þátt í að móta skilgreiningu þessa gamla hugtaks á nýjum tímum. Rýnt er í hugmyndir um klám sem andstæðu upplýsandi fræðslu og listrænnar tjáningar, um kynfrelsi og bælingu, ritskoðun og tjáningarfrelsi, ónáttúru og afbrigðilegar hneigðir. Við sögu kemur ýmislegt sem ekki hefur verið rætt í samhengi Íslandssögunnar hingað til – enda stranglega bannað börnum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Stund klámsins

Stund klámsins

5,490 ISK
5,490 ISK