Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Útvörðurinn
4,690 ISK
Höfundur Lee Child
Útvörðurinn er tuttugasta og fimmta bókin í metsöluflokknum magnaða um réttlætisriddarann Jack Reacher. Bókina skrifaði Lee Child ásamt Andrew bróður sínum, en sá mun með tímanum taka við bókaflokknum.
Jack Reacher verður vitni að mannráni í smábæ í Tennessee-fylki. Eða öllu heldur tilraun til mannráns, því okkar maður skerst að sjálfsögðu í leikinn. Upp úr dúrnum kemur að allt tölvukerfi bæjarins liggur niðri eftir gagnaárás og að maðurinn sem Reacher bjargaði gegndi stöðu upplýsingatæknistjóra plássins. En hvers vegna eru allir þessir rússnesku glæponar á höttunum eftir óbreyttri tölvublók?