Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Bernska, æska og manndómsár

3,999 ISK

Höfundur Lev Tolstoj, Áslaug Agnarsdóttir

Rússneski skáldjöfurinn Lev Tolstoj (1828–1910) er flestum kunnur fyrir stórvirki sín, Stríð og frið og Önnu Karenínu. Fyrstu þrjár skáldsögur hans voru þríleikurinn Bernska, Æska og Manndómsár. Þær eru jafnan núorðið gefnar út í einu lagi.

Bækurnar byggja á uppvexti skáldsins og flestar persónur þeirra eiga sér að nokkru fyrirmynd í ævi Tolstojs sjálfs. Hrífandi og djúpvitur uppvaxtarsaga.

Áslaug Agnarsdóttir þýddi úr rússnesku og skrifar inngang um Tolstoj og verk hans.