Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Klettaborgin

3,990 ISK 999 ISK

Höfundur Sólveig Pálsdóttir

Sólveig Pálsdóttir var ung send í sveit austur í Skaftafellsýslu og dvaldi í mörg ár sumarlangt á bænum Hraunkoti í Lóni. Segja má að tveir heimar hafi búið í Sólveigu alla tíð. Á veturna bjó hún í Vesturbænum en dvaldi einnig löngum á Bessastöðum þar sem afi hennar var forseti Íslands. Klettaborgin byggir á minningum Sólveigar frá æsku og fram undir tvítugt og persónugalleríið er fjölbreytt. Hún skrifar um fólk og atburði, sem hafa haft áhrif á líf hennar, og lýsir horfnum heimi og annars konar lífsgildum en við þekkjum í dag.  

Sólveig hefur hingað til skrifað glæpasögur við góðan orðstír. Hún hefur sent frá sér bækurnar Leikarinn, Hinir réttlátu, Flekklaus, Refurinn og Fjötrar en fyrir þá síðastnefndu hlaut hún Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu glæpasögu ársins 2019. Nú leitar hún á ný mið og rifjar með hrífandi og kærleiksríkum hætti upp atburði frá uppvaxtarárum sínum. Klettaborgin geymir fallegar sögur og dýrmætar minningar um dýrmætar manneskjur. Myndir, bréf og margt fleira prýðir síður bókarinnar.

Klettaborgin fékk fjórar stjörnur í ritdómi í Morgunblaðinu þar sem meðal annars sagði: ...perluband fallegra minninga. Sólveig spinnur einkar fallega, í vel meitluðum, glettnum og viðfelldnum texta og stuttum köflum sem gera bókina þægilega aflestrar. Sigurður Bogi Sævarsson, Morgunblaðið


Hér má lesa viðtal við Sólveigu á Hringbraut

Hér má lesa viðtal við Sólveig á Man.is þar sem hún segir frá Klettaborginni og frábærum viðtökum á Refnum í Bretlandi