Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Fjallaland

4,990 ISK

Höfundur Ragnar Axelsson, Pétur Blöndal

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Landmannaafréttur nær frá Heklurótum í vestri til Veiðivatna í austri. Í miðju hans eru Landmannalaugar, eitt helsta náttúruundur heims þar sem líparítskriður, hverir, jökulís og grænir flákar skapa einstakt samspil lita og mynda. Þarna leita bændur úr Holtum og af Landi að fé sínu hvert haust.

Í rúman aldarfjórðung hefur Ragnar Axelsson slegist í för með þeim og ljósmyndað leitirnar við allar hugsanlegar aðstæður – hvort sem er í hríð, úrhelli eða um sólbjartan dag – og skapað stórbrotið heimildaverk sem á sér fáar hliðstæður.

Göngur og leitir eru ein elsta hefð íslensks samfélags. Fjallskil byggjast á þekkingu sem miðlað er mann fram af manni og þar ráða ríkjum samheldni, skipulag og úthald. Á fáum stöðum á Íslandi eru leitir jafn krefjandi og í villugjörnu völundarhúsinu að fjalllabaki þar sem ekki verður komið við hestum eða farartækjum nema að litlu leyti.

Í félagi við leiðsögumann sinn, Þórð Guðnason frá Þverlæk í Holtum, ferðast RAX um þetta ægifagra fjallaland þar sem mennirnir ganga út úr sinni daglegu tilveru og verða gestir í ríki goðsögunnar.