Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fjölærar plöntur

9,990 ISK

Höfundur Guðríður Helgadóttir

Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur og líffræðingur, Gurrý í garðinum, hefur unnið við garðyrkjutengd störf allan sinn starfsferil og frætt almenning um garðyrkju með margvíslegum hætti, í útvarpi, sjónvarpi og öðrum miðlum. Í þessari bók fjallar Gurrý um fjölærar plöntur sem henta í íslenska garða en hún hefur lengi haft sérstakt dálæti á fjölæringum hvers konar. Flestar tegundir í bókinni eru vel þekktar í ræktun en innan um og saman við eru sjaldgæfari dýrindi. Alls koma tæplega 180 tegundir við sögu í bókinni og eru hverri tegund gerð skil í máli og myndum á heilli opnu.