Innlyksa
4,490 ISK
Höfundur Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare
Smásagnasafnið Innlyksa er samvinnuverkefni þriggja höfunda sem hafa vakið athygli síðustu ár með skáldsögum sínum og ljóðabókum. Það eru þær Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare.
Í smásagnasafninu sameina þessir þrír rithöfundar raddir sínar í margslungnum frásögnum af ókennilegum veruleika. Safnið inniheldur fimmtán sögur og í þeim er lesendum varpað ofan í lýsingar á bláköldum hversdegi yfir í hryllingsraunsæi og framtíðarskáldskap. Saman takast sögurnar á við þungamiðju verksins sem er einangrun, einmanaleiki og innilokunarkennd.
Hvað gerir manneskjan þegar öll sund eru lokuð?
"Sögur sem smjúga inn að merg. Raunsæi og annarleiki fléttast saman á áhrifaríkan hátt í anda Svövu Jakobsdóttir." - Berglind Ósk, rithöfundur
"Innlyksa er tilraun til að brjótast út. Grípandi sögur og samspilið áhugavert á milli höfundanna þriggja." - Steinar Bragi, rithöfundur