Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Íslenskar þjóðsögur - úrval

4,490 ISK

Höfundur Ýmsir

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Þjóðsögur eru einhver dýrasti arfur hverrar þjóðar. Þær veita einstaka innsýn í hugarheim genginna kynslóða, líf þeirra, reynslu og örlög, trú og hjátrú. Þar birtist okkur að auki kynjaveröld hins dulúðuga og yfirnáttúrulega.

Í þessari áhugaverðu bók er að finna ýmsar af þekktustu þjóðsögum Íslendinga, um álfa og huldufólk, drauga og galdramenn, tröll og útilegumenn, svo fátt eitt sé nefnt. Íslenskar þjóðsögur hefur að geyma úrval úr einstæðum sagnabrunni; sögurnar eru fjárstjóður sem þjóðinni hefur áskotnast í aldanna rás og gera þarf aðgengilegar fyrir hverja nýja kynslóð.