Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Bókakvöld Sölku - Hvar er að finna góða ávöxtun?

Það er komið að öðru bókakvöldi Sölku þetta haustið! Það má með sanni segja að kvöldið verði fróðlegt en gestir okkar að þessu sinni hafa áratuga reynslu þegar kemur að fjárfestingum á hlutabréfamarkaði. Hvar er að finna góða ávöxtun, í hvaða löndum er vænlegast að fjárfesta, hvaða aðferðir er best að nota og síðast en ekki síst, hvernig er hægt að verjast óhóflegri áhættu? Svör við þessum og vonandi fleiri áhugaverðum spurningum verður hægt að fá hjá þeim Sigurði B. Stefánssyni og Svandísi Rún Ríkarðsdóttur en þau gáfu í fyrra út bókina Hlutabréf á heimsmarkaði - eignastýring í 300 ár. Bókin byggir á langri reynslu og þekkingarleit höfunda sem hafa sérhæft sig í eignastýringu.

Bókakvöldið verður þriðjudaginn 4. október kl. 20 í bókabúð Sölku, Hverfisgötu 89-93. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Fræðandi umræður, bókin á góðum kjörum og bókabarinn opinn.

Um bókina:

Í bókinni Hlutabréfum á heimsmarkaði - eignastýring í 300 ár er leitast við að auka skilning og gefa betri yfirsýn um alþjóðlegan fjármálamarkað. Hlutabréf eru besta leiðin til að byggja upp eignir og heimsmarkaðurinn er okkar heimamarkaður. Með betri þekkingu á hlutabréfamarkaðinum verður fjárfesting markvissari og dýpri skilningur næst á þeirri áhættu sem viðskiptunum fylgir.

Höftum á gjaldeyrismarkaði á Íslandi var að mestu rutt úr vegi árið 2017 en heimildir til viðskipta með erlend verðbréf höfðu verið háðar takmörkunum frá nóvember 2008. Við afnám hafta vöknuðu til lífsins spurningar sem legið höfðu í dvala í nærri áratug. Hvar er að finna góða ávöxtun, í hvaða löndum er vænlegast að fjárfesta, hvaða aðferðir er best að nota og síðast en ekki síst, hvernig er hægt að verjast óhóflegri áhættu?

Í bókinni er leitað svara við þessum spurningum sem raunar brenna daglega vörum margra fjárfesta og sjóðstjóra. Í fjármálafræðinni og reynslubúri fjárfesta er oft að finna mismunandi svör við hverri spurningu. Ólíkar kenningar við greiningu og mismunandi forsendur eru helstu skýringar og í bókinni er lýst hvernig stundum er hægt að sameina það besta frá helstu skólum eignastýringar til að bæta árangur.

Saman hafa Sigurður og Svandís ritað Lesið í markaðinn – leitin að bestu ávöxtun (2016) en Sigurður B. er ritstjóri Hlutabréfa og eignastýringar (2003), Verðbréfa og áhættu (1994) og Hlutabréfamarkaðarins (1990).

3. október 2022 eftir Dögg Hjaltalín
Efnisorð: Bókakvöld Sölku