Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Lifandi laugardagur
Við kynnum með stolti nýjan og yndislegan aðventuviðburð í bókabúð Sölku við Hverfisgötu! Á lifandi laugardögum geta bókaormar og stuðpinnar á öllum aldri fundið eitthvað við sitt hæfi.

Lifandi laugardagur #1
6. desember

14-15 Föndur og upplestur fyrir börn
Diljá Hvannberg Gagu, höfundur bókarinnar Árstíðarverur, stýrir notalegri föndur- og upplestrarstund fyrir börn. Öll börn sem mæta fá bókagjöf og boðið verður upp á jólagóðgæti
15-16 Höfundar lesa úr nýútkomnum bókum
Þrír höfundar lesa úr bókum sínum og boðið er upp á frían drykk!
Árni Helgason - Aftengingin
Katrín Júlíusdóttir - Þegar hún hló
Valur Gunnarsson - Grænland og fólkið sem hvarf
16-17 Tónlist og happy hour
Okkar allra besta DJ Sóley þeytir skífum og hamingjustund verður á bókabarnum á meðan. Sjóðheitar bækur til sölu og við pökkum inn með bros á vör
Verið hjartanlega velkomin!
2. desember 2025 eftir Anna Lea Friðriksdóttir