Ungu konurnar sem eru að umbreyta Mið-Austurlöndum
Bókin Framúrskarandi dætur er komin út. Hún gefur þarfa og mikilvæga innsýn í daglegt líf ungra kvenna í Mið-Austurlöndum á miklum umbreytingatímum. Staða kvenna í heimshlutanum hefur tekið breytingum á undanförnum árum og nýrri kynslóð fylgja sjálfstæðar ungar konur sem sækja menntun og vilja láta til sín taka á vinnumarkaðinum.
Skrásetjari bókarinnar er blaðakonan Katherine Zoepf sem hefur búið og starfað í Mið-Austurlöndum í meira en áratug. Hún lýsir flóknum veruleika ungra kvenna þar á einlægan og hlutlausan hátt. Hún dvelur í Sýrlandi fyrir borgarastyrjöldina og lýsir þjóðfélagi á tímamótum, í Líbanon, sem á yfirborðinu er frjálslyndara en jafnframt mótsagnakenndara, en önnur ríki Mið-Austurlanda, Abú Dabí þar sem konur eru í síauknum mæli á frjálsum vinnumarkaði, í Sádi-Arabíu þar sem konur hafa mótmælt akstursbanninu og storkað forræði karla og loks í Egyptalandi þar sem konur gegndu veigamiklu hlutverki í uppreisninni og arabíska vorinu sem fylgdi í kjölfarið.
Boðskapur Framúrskarandi dætra er aðkallandi og varpar ljósi á þá þróun sem hefur átt sér stað í Mið-Austurlöndum á undanförnum árum og ljær ungu konunum í fremstu röð breytinganna rödd.
Þýðandi er Katrín Harðardóttir.
“Átakanleg og áhrifarík … þekking Katherine Zoepf á arabísku, opinn hugur hennar, skýrleiki og samúð og mögulega fortíð hennar sem vottur Jehóva gerir henni kleift að skilja líf þessara kvenna á þeirra eigin forsendum. Hún missir hvergi fótanna, hvorki í heimi þeirra né okkar.”
-
New York Times
“Katherine Zoepf veitir lesendum persónulega innsýn í smáar en róttækar gjörðir þessara kvenna. Hún varpar ljósi á valið sem þær standa frammi fyrir á degi hverjum og býður staðalímyndinni sem vestrænir lesendur kunna að hafa af íbúum Mið-Austurlanda byrginn”
-
Washington Post