Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Bókamarkaðurinn 2016

Hinn árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefanda opnar föstudaginn 26. febrúar og verður opinn daglega frá 10-21 til 15. mars. Líkt og í fyrra er hann haldinn við Laugardalsvöllinn, undir stóru stúkunni. Því næst flytur markaðurinn til Akureyrar svo að frændur okkar norður í landi geti líka notið góðs af.

Að sjálfsögðu eru flestir titlar Sölku á markaðnum á kostakjörum! Við hvetjum sem flesta til að líta við og gera góð kaup. Næg bílastæði!

25. febrúar 2016 eftir Anna Lea Friðriksdóttir