Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Berlínarbjarmar og októberfest
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Berlínarbjarmar - Langamma, David Bowie og ég eftir Val Gunnarsson í bókabúð Sölku við Hverfisgötu föstudaginn 18. október kl. 17. Að sama tilefni fögnum við októbermánuði á þýskan máta og bjóðum upp á gullnar veigar og saltar kringlur á meðan birgðir endast en á góðum gleðistundarkjörum þar eftir. Öll hjartanlega velkomin! Bókin verður á sérstöku útgáfutilboði og höfundur áritar. 
Um Berlínarbjarma:

Framtíðin tilheyrir Berlín. Það hefur hún lengi gert, og þó lætur fortíðin finna fyrir sér við hvert fótmál. Í rúm 40 ár var Berlín ekki ein borg, heldur tvær. Mörgum þótti spennandi að heimsækja Austur-Berlín, samhliða veröld þar sem allt sneri einhvern veginn á haus. En hinn helmingur borgarinnar var ekki síður einstakur. Vestur-Berlín varð anarkistakommúna reist á prússneskum grunni, allt var leyfilegt en þó vel skipulagt. Lítil vin mitt á milli áhrifasvæða stórvelda, umkringd gaddavír en þó frjáls á sinn einstaka hátt.

Og svo féll múrinn.

Sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson kryfur hér sögu hinnar margslungnu Berlínar og nágrennis frá mörgum hliðum allt frá tímum keisara, nasista, heimsstyrjalda og svo aðskilnaðar til falls múrsins. Við sögu koma hin þýska langamma höfundar, goðsögnin David Bowie og rokkhundurinn Iggy Pop, innflytjendur og rómantíkerar, políamoristar og pönkarar sem myndað hafa með sér sérstakt samfélag í þessari borg sem ekki er eins og nein önnur. 

11. október 2024 eftir Anna Lea Friðriksdóttir