Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Næturskrímslin eftir Pétur Arnórsson og Þórhildi Sunnu Jóhannsdóttur með okkur í bókabúð Sölku, Hverfisgötu 89, laugardaginn 3. október kl. 14! Boðið verður upp á léttar veitingar, höfundar árita og bókin verður að sjálfsögðu á útgáfutilboði. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um Næturskrímslin:
Ómar litli er logandi hræddur við skrímsli. Eðlilega! Enn eina nóttina er honum rosalega mál að pissa en þorir ekki fram úr rúminu sínu. En þá man hann eftir skrímslafælunni sem mamma hans gaf honum. Hann verður að safna kjarki og hætta sér niður til stigann til að komast á klósettið!
Næturskrímslin fjallar um að sigrast á ótta sínum og efla sjálfstraust á skemmtilegan og lifandi hátt. Hún er fyrsta barnabók Péturs Arnórssonar og Þórhildar Sunnu Jóhannsdóttur.