Endurvekjum tarot-námskeiðin í október!
Verið velkomin á tarot-kvöld Sölku þar sem nornin Íris Ann Sigurðardóttir kennir grunnatriði tarot-lesturs, hvernig leggja skal spilin og lesa úr þeim. Námskeiðið verður mánudagskvöldið 5. október.
Innifalið í verðinu er handbók um tarot, falleg tarot-spil, léttvínsglas (eða óáfengur drykkur) og að sjálfsögðu kennslan. Pláss er fyrir 18 manns á námskeiðinu og skráning er hér.
* þeir sem þegar eiga Tarot-bókina og spilin geta valið um að fá bókina Lesið í tarot eða Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt í staðinn *
Námskeiðið fer fram í bókabúð Sölku á Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík. Það hefst kl. 20 og áætlað er að námskeiðið standi til kl. 22. Húsið opnar kl. 19.45.
Verið hjartanlega velkomin!
