Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Esmeralda Santiago á Bókmenntahátíð í Reykjavík

Esmeralda Santiago, höfundur Stúlkunnar frá Púertó Ríkó og Næstum fullorðin, verður gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík sem fer fram dagana 6.-9. september 2017. Esmeralda, sem er menntuð leikkona, er fædd árið 1948 í Púertó Ríkó en flutti 13 ára gömul til New York. Bækur hennar eru minningarbækur og sjálfsævisögulegar að miklu leyti. Rödd hennar er hlý og frásagnargáfan leiftrandi. Bækur hennar gera mannlegt eðli og daglegt líf stórrar fjölskyldu að umfjöllunarefni sínu og hafa verið þýddar á fjölda tungumála. 

Við hlökkum til að fá Esmeröldu til landsins og kynna hana betur fyrir íslenskum lesendum!

 

Hér er umfjöllun um bókina Næstum fullorðin, sem má kaupa hér.

Esmeralda Santiago er frá Púertó Ríkó og er nýflutt til New York. Líf hennar utan veggja heimilisins er kærkomin hvíld frá baslinu í tveggja herbergja íbúð í Brooklyn, kröfuharðri móður og ört stækkandi systkinahópi. Töfrar og tækifæri borgarinnar heilla og Esmeröldu dreymir um að gera nokkuð sem enginn í fjölskyldu hennar hefur gert áður - að mennta sig. Hún fær inngöngu í virtan sviðslistaskóla á Manhattan, leikur Kleópötru í leiksýningum, dansar salsa um nætur og eygir von um annað líf, frægð og frama.

Esmeralda aðlagast nýju umhverfi fljótt en krafan um að hún sé trú uppruna sínum er sterk og togstreitan eykst. Hún berst fyrir sjálfstæði sínu og að losna undan verndarvæng móður sinnar sem sér hættur á hverju götuhorni og í augnatilliti hvers karlmanns.

Bókin er sjálfstætt framhald Stúlkunnar frá Púertó Ríkó sem kom út 2014.

Hér heldur höfundur áfram að segja þroskasögu sína og lýsa uppvexti sínum á magnaðan og seiðandi hátt. Esmeralda Santiago deilir með okkur minningum sínum sem veita einstaka innsýn í líf ungrar konu í New York sjöunda áratugarins.

Leiftrandi frásagnargáfa Esmeröldu heldur lesandanum hugföngnum. Ljóslifandi minningabók sem erfitt er að leggja frá sér og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Herdís Magnea Hübner íslenskaði.

 

9. maí 2017 eftir Anna Lea Friðriksdóttir