Fjallvegahlaup um Lyngdalsheiði

Fjallvegahlaupasumarið 2026 hefst laugardaginn 9. maí nk. kl. 10:00 með hlaupi yfir Lyngdalsheiði, nánar tiltekið eftir gamla veginum frá Gjábakka í Þingvallasveit að
Laugarvatni. Með „gamla veginum“ er hér átt við aðalveginn yfir heiðina fyrir daga núverandi vegar, þ.e. nokkurn veginn sömu leið og hlaupin er í hinu árlega
Bláskógaskokki.
Hlaupið hefst sem sagt við Gjábakka austan við Þingvallavatn. Þangað er um 7 km akstur frá þjónustumiðstöðinni (ferðamannasjoppunni) á Þingvöllum, en um 51 km frá N1 í Ártúnshöfða um Mosfellsheiði. Rétt er að hafa í huga að lítið er af bílastæðum við Gjábakka. 
Að sjálfsögðu er öllum boðið að taka þátt í Lyngdalsheiðarhlaupinu. Vegalengdin er
rétt um 10 mílur (um 16 km) og hraðinn verður bara sá sem flestum hentar. Fólk má
t.d. alveg ganga þetta rösklega. Fjallvegahlaupin eru jú skemmtihlaup en ekki
keppni. Og staðsetning hlaupsins gerir það að verkum að stór hluti þjóðarinnar ætti
að eiga tiltölulega auðvelt með að koma sér á staðinn.
Þátttakan í hlaupinu kostar ekki neitt og þátttakendur fara þetta á eigin ábyrgð.
Hlaupið er skipulagt í samstarfi við bókaútgáfuna Sölku og þess vegna er fólk beðið að skrá sig á þar til gerðan Facebookviðburð. Hver veit nema efnt verði til uppákomu í lok hlaupsins, þar sem fjöldinn skiptir máli.
Hlaupið yfir Lyngdalsheiði verður 92. fjallvegahlaupið frá því að
fjallvegahlaupaverkefnið hófst sumarið 2007. Stefnt er að því að fjallvegirnir verði
orðnir 100 talsins fyrir árslok, enda er ný fjallvegahlaupabók frá bókaútgáfunni Sölku
væntanleg í allar helstu bókabúðir í mars 2027 (á sjötugsafmælinu höfundar). Þar verða frásagnir og myndir frá síðustu 50 hlaupum (hlaupum nr. 51-100).
Reimum á okkur hlaupaskóna og hittumst við Gjábakka í Þingvallasveit laugardaginn 9. maí nk. kl. 10:00. Stefnan er að þetta verði góður dagur í góðum félagsskap og (næstum örugglega) í góðu veðri.
Fyrirspurnir sem varða hlaupið má senda á stefan@umis.is.
Fjallvegahlaup um Lyngdalsheiði