Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Allir þingmenn fengu bók um loftslagsmál frá Sölku

Allir þingmenn fengu bókina Þetta breytir öllu: kapítalisminn gegn loftslaginu eftir Naomi Klein að gjöf.

Hanna Katrín Friðriksson, Birgir Ármannsson, Ólafur Ísleifsson, Guðmundur Andri Thorsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir veittu bókinni viðtöku fyrir hönd þingflokkana og voru allir á einu máli um að loftslagsmálin væru aðkallandi.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra veittu bókinni einnig viðtöku.

“Það er von okkar að innihald bókarinnar nái athygli sem flestra enda er lesendum ljóst að lestri loknum að breytinga er þörf ekki seinna en strax. Váin vofir yfir og bók Naomi Klein bendir á aðgerðir sem auðveldlega væri hægt að grípa til á Íslandi,” segja Anna Lea Friðriksdóttir og Dögg Hjaltalín, útgefendur hjá Sölku og bæta við að ánægjulegt sé að sjá ríkisstjórnina taka við sér í loftslagsmálum en enn sé langt í land.

24. september 2018 eftir Anna Lea Friðriksdóttir