Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Samningatækni fyrir alla

Bókin Samningatækni eftir Aðalstein Leifsson er komin út hjá Sölku. Aðalsteinn Leifsson er lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík þar sem hann hefur kennt samningatækni við góðan orðstír til fjölda ára. Aðalsteinn starfar sem einn af framkvæmdastjórum EFTA í höfuðstöðvum samtakanna í Genf. Aðalsteinn hefur veitt ráðgjöf og þjálfað stjórnendur og starfsmenn fjölmargra fyrirtækja bæði hér á landi og erlendis í samningatækni.

Samningaviðræður eru hluti af daglegu lífi fólks, hvort sem er í starfi, vegna persónulegra fjármála eða í samskiptum við fjölskyldu og vini. Í þessari bók gefur Aðalsteinn hagnýtar ráðleggingar sem byggja á rannsóknum til að hjálpa þér að ná árangri hvort sem þú semur fyrir þig, fjölskylduna eða fyrirtækið.

Samningatækni fjallar um hvernig þú getur staðið á þínu þegar tekist er á um eitt atriði eins og verð, hvernig best er stýra viðræðum frá átökum og byggja upp traust og samstarf og hvernig þú getur undirbúið þig og náð árangri í krefjandi aðstæðum. Í bókinni er fjöldi raunverulegra dæma, verkefni sem lesendur geta spreytt sig á og hagnýt ráð fyrir mikilvægar samningaviðræður sem allir standa frammi fyrir á lífsleiðinni.

Við fögnum útgáfu bókarinnar fimmtudaginn 27. september kl. 17.30 í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18. Léttar veitingar og frábær félagsskapur. Allir velkomnir!

24. september 2018 eftir Anna Lea Friðriksdóttir