Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Fögnum Árangursríka stjórnandanum
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Árangursríki stjórnandinn eftir Peter F. Drucker, í íslenskri þýðingu Kára Finnssonar, í bókabúð Sölku 23. júní kl. 17! Bókin verður fáanleg á góðu verði, léttar veitingar í boði og öll velkomin!
Um bókina:
Hvað gerir stjórnanda árangursríkan ?
Í Árangursríka stjórnandanum eftir Peter F. Drucker segir að stjórnendum sé fyrst og fremst ætlað að koma réttu hlutunum í verk. Það þýðir einfaldlega að ætlast er til þess að þeir séu árangursríkir í starfi. Árangursríkir stjórnendur hafa jafn mikinn tíma og aðrir en þeir nýta tímann betur og kunna að forgangsraða.
Í bókinni dregur Drucker fram fimm grundvallaratriði sem reynast ættu öllum stjórnendum gott veganesti:
Hvernig við nýtum tíma okkar á árangursríkan hátt
Hvernig við uppgötvum og nýtum styrkleika okkar
Hvernig við finnum út hvað við getum lagt af mörkum
Hvernig við einbeitum okkur að því sem skiptir máli
Hvernig við tökum árangursríkar ákvarðanir
Bókin gagnast öllum sem bera ábyrgð í starfi, hvort það er í fyrirtæki, á sjúkrahúsi, í skóla eða opinberri stofnun.
Peter F. Drucker (1909-2005) er frumkvöðull á sviði stjórnunarfræða og hafa verk hans verið nýtt sem kennslurit í háskólum, fyrirtækjum og stofnunum um heim allan. Eftir Drucker liggja samtals 39 bækur og yfir hundrað greinar sem lögðu grunninn að því sem á okkar dögum kallast stjórnunarfræði.
13. júní 2023 eftir Anna Lea Friðriksdóttir