Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Fögnum Miðlinum eftir Sólveigu Pálsdóttur
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu Miðilsins eftir Sólveigu Pálsdóttur með okkur fimmtudaginn 19. október kl. 17! Fögnuðurinn fer fram í bókabúð Sölku við Hverfisgötu 89-93 og opið verður á báðum hæðum þannig að rúmt ætti að vera um gesti. Boðið verður upp á léttar veitingar, bókin verður á útgáfutilboði og að sjálfsögðu áritar Sólveig bækur. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um Miðilinn:
Á köldum vetrarmorgni er rannsóknarlögreglan kölluð út að Hólavallagarði. Innan um þá sem þar hafa verið lagðir til hinstu hvílu finnst lík eldri konu og fljótt er ljóst að dauðdaga hennar hefur borið að með saknæmum hætti. Hver getur hafa átt eitthvað sökótt við þessa eldri konu sem virðist hafa verið hlédræg, vanaföst og einförul?
Þegar rannsókninni miðar áfram er greinilegt að ekki var allt sem sýndist í lífi konunnar og Guðgeir Fransson og teymi hans eiga fullt í fangi með að leysa þetta dularfulla mál sem meðal annars leiðir þau á miðilsfundi og djúpt í þyrnum stráða fortíð fórnarlambsins.
Miðillinn er æsispennandi saga úr smiðju Sólveigar Pálsdóttur sem hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra.
Miðillinn er áttunda bók Sólveigar Pálsdóttur en hún hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra og var hún jafnframt framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Sama ár var Sólveig valin
bæjarlistamaður Seltjarnarness, fyrst rithöfunda. Sólveig hefur tvívegis verið tilnefnd til verðlauna hjá Storytel. Bækur hennar hafa komið út á ensku og þýsku.
13. október 2023 eftir Anna Lea Friðriksdóttir