Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Mamma kaka er komin út!
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu Mömmu köku eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur í bókabúð Sölku á Hverfisgötu! Fögnuðurinn fer fram laugardaginn 3. september og hefst kl. 14. Að sjálfsögðu verður boðið upp á köku og eitthvað til að væta kverkarnar. Allir velkomnir!
Um bókina:
Viggó er kominn í vetrarfrí. En það er mamma alls ekki. Hún hefur engan tíma til að leika við Viggó heldur vill bara vinna, sussa og skammast. Þá væru góð ráð dýr fyrir flesta krakka. En ekki fyrir Viggó!
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er fjöllistakona sem fæst við myndlist og skriftir, söng, grín, myndasögur og karókí. Hún var tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Grísafjörð sem einnig var valin barnabók ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.
29. ágúst 2022 eftir Anna Lea Friðriksdóttir