Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Bókakvöld Sölku - Anna María og Jarðsetning
Verið hjartanlega velkomin á bókakvöld Sölku miðvikudaginn 1. mars kl. 20. Gestur okkur að þessu sinni er Anna María Bogadóttir sem mun segja frá bók sinni Jarðsetning sem fengið hefur einróma lof gagnrýnenda og lesenda. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og bókabarinn verður að sjálfsögðu opinn. Hlökkum til að sjá ykkur!
Í Jarðsetningu fer höfundur með lesendur inn í stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu og þaðan á vit hugmynda og drauma sem búa í hinu byggða. Með hversdagslíf borgarinnar í bakgrunni fléttar hún frásögn af lífi og dauða byggingar saman við sögu hugmynda og sína eigin sögu.
Anna María Bogadóttir arkitekt hefur gefið út bækur um arkitektúr og manngert umhverfi og ritstýrt bókum um sama efni. Í Jarðsetningu brúar hún bilið milli arkitektúrs og bókmennta í frumlegum texta og lifandi myndum.
„Framúrskarandi bók og óvæntasti yndislestur vertíðarinnar. Ein besta bók flóðsins.“ Þorgeir Tryggvason
„Bylting.“ Guðrún Eva Mínervudóttir
„Einstaklega frumlegt og áhugavert verk sem hnitast um hús Iðnaðarbankans í Lækjargötu með endalausum tilvísunum í hugmyndafræði, arkitektúr og persónulegar minningar.“ Andri Snær Magnason
„Jarðsetning er í senn spennandi og afhjúpandi ferðalag um innilegt en um leið brösulegt samband mannkyns við hið byggða umhverfi. Persónulegt og einstakt listaverk.“ Björn Teitsson, sérfræðingur hjá skipulagsstofnun
„Þetta er afskaplega frumlegt verk og verðskuldar miklu meiri athygli en það hefur ennþá fengið.“ Stefán Pálsson, sagnfræðingur
„Skyldulesning fyrir fagfólk en ekki síður fyrir aðra, þar sem hún lýsir á inspirerandi hátt því að vera manneskja, lífræn vera, í manngerðum heimi.“ Hildigunnur Sverrisdóttir
„Mögnuð og óvenjuleg bók sem opnaði augu mín fyrir því hvernig byggingar móta ytra og innra samfélag.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir, bókmenntafræðingur
21. febrúar 2023 eftir Anna Lea Friðriksdóttir