Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Örfá sæti laus á tarot-námskeið 16. febrúar
Enn eru örfá sæti laus á tarot-kvöld Sölku fimmtudaginn 16. febrúar. Miðasala fer fram hér. Nornin Íris Ann Sigurðardóttir kennir grunnatriði tarot-lesturs, hvernig leggja skal spilin og lesa úr þeim.
Innifalið í verðinu er handbók um tarot, falleg tarot-spil, léttvínsglas (eða óáfengur drykkur) og að sjálfsögðu kennslan. Pláss er fyrir 18 manns á námskeiðinu.
* þeir sem þegar eiga Tarot-bókina og spilin fá bókina Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt í staðinn *
Námskeiðið fer fram fimmtudagskvöldið 16. febrúar kl. 20 í bókabúð Sölku á Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík. Áætlað er að námskeiðið standi til kl. 22.
Verið hjartanlega velkomin!